WedPics-app / MYNDIR

 
Við erum búin að setja upp aðgang hjá WedPics og biðjum þá sem eru með android eða snjallsíma að ná í appið: WedPics, þar sláið þið inn Wedding ID sem er: sveitabrudkaup og komist þá inn á síðuna okkar.
Þeir sem eru ekki með slíkan síma geta skráð sig inn á síðunni þeirra hér. Auðveldast er að skrá sig í gegnum facebook-aðganginn sinn.

Tilgangurinn með þessari síðu er að safna saman sem flestum myndum og minningum sem bæði við og þið getið skoðað hvenær sem er.

Okkur þætti því vænt um ef þið mynduð hlaða inn öllum myndum sem þið hafið tekið í gæsun & steggjun (eftir brúðkaupið, auðvitað) og alla myndir sem þið takið í brúðkaupinu sjálfu, um leið og þið takið þær! Það er hægt að gera í símanum í gegnum appið og fyrir þá sem eru með myndavélar þá er hægt að hlaða þeim inn í gegnum tölvu á síðunni sjálfri.

Það verða einnig einnota myndavél á hverju borði þannig við ættum að ná að fanga öll augnablikin saman :)

Engin ummæli:

Skrifa ummæli